Ég hef alltaf haft gaman að því að vinna með fólki og nýt þess alveg einstaklega mikið að búa eitthvað til með þeim sem ég mynda til þess að koma þeim eða þeirra boðskap á framfæri.

Ég byrjaði í ljósmyndanámi í tækniskólanum árið 2021 og útskrifaðist þaðan 2025 og fór beint í starfsnám að mynda fyrir Heimildina og Mannlíf. Starfsnáminu loknu hef ég unnið sjálfstætt og myndað allt frá veislum og brúðkaupum yfir í Portrett og Partý.

Ekki hika við að hafa samband ef þið hafið einhverjar spurningar eða vangaveltur.

,,Myndin verður ekki til í myndavélinni, heldur sitthvorum megin við hana.´´